Trésmiðir.is
Nærmynd af málmfrágangi þar sem kvistur mætir báruðu þaki.

Þak · Höfuðborgarsvæðið

Þakviðgerðir og þakvinna liðinna ára

Myndir úr verkefnum Trésmiða.is

Hér má sjá úrval þakviðgerða og þakvinnu sem Trésmiðir.is hafa unnið á liðnum árum. Verkefnin spanna allt frá minni viðgerðum og reglulegu viðhaldi til þakskipta og umfangsmikilla endurbóta.

Þakvinna frá undirlagi til lokafrágangs

Við tökum að okkur vinnu við bárujárnsþök, aðrar málmklæðningar, þakpappa og flöt þök. Við önnumst einnig endurnýjun undirlags og einangrunar, viðgerðir og frágang þakkanta ásamt uppsetningu og endurnýjun þakrenna og niðurfalla.

Við skoðum ástand þaksins og metum hvað þarf að lagfæra eða endurnýja. Áhersla er lögð á vandað efnisval og góðan frágang í öllum verkþáttum. Allt þakjárn sem við kaupum til verka kemur frá Límtré Vírnet.

Myndasafnið sýnir ólík verkefni og lausnir við viðhald og endurbætur þaka. Í verkefnayfirlitinu má einnig finna nánari kynningar á einstökum verkum.

Þarf þakið viðhald eða endurnýjun?

Óska eftir tilboði →

← Öll verkefni

Svipuð verk

Löggiltur byggingaverktaki

Viltu fá heiðarlegt mat á verkið?

Fáðu ráðgjöf og verðtilboð sem passar þínum þörfum. Það tekur um 2 mínútur að senda fyrirspurn.

Löggiltur húsasmíðameistari
Ábyrgðartrygging hjá VÍS
Svar innan 48 klukkustunda
HringjaTilboð