
Löggiltur byggingaverktaki
Fyrirtækið
Trésmiðir.is var stofnað árið 2012 af Steini Jóhanni Randverssyni, húsasmíðameistara. Við tökum að okkur þakvinnu, gluggaskipti, viðhald og fjölbreytt smíðaverk fyrir húseigendur og húsfélög.
Maðurinn á bak við fyrirtækið
Steinn Jóhann Randversson er húsasmíðameistari og löggiltur byggingarstjóri með löggildingu frá Mannvirkjastofnun. Hann byrjaði að smíða 15 ára gamall og hefur áralanga reynslu í faginu. Hann stofnaði Trésmiðir.is árið 2012. Við leggjum áherslu á skýr samskipti við verkkaupa og vandaðan frágang.
Húsasmíðameistari
Meistarabréf Steins Jóhanns Randverssonar í húsasmíði.
Svona vinnum við
Við byrjum á að fara yfir lýsingu á verkinu og meta hvort þörf sé á skoðun á staðnum. Síðan förum við yfir umfang, efnisval og forsendur tilboðs með þér.
Á meðan á verkinu stendur höfum við samráð um framkvæmdina og förum yfir breytingar eða viðbótarverk sem koma upp. Markmiðið er að þú vitir hvað á að vinna og hver næstu skref eru.
Gæðakerfi og verkstjórn
Við vinnum með gæðakerfi fyrir byggingarstjóra og iðnmeistara. Kerfið gerir ráð fyrir skipulegri varðveislu samninga, verkáætlana, teikninga og verklýsinga, ásamt skráningu á eigin eftirliti, úttektum og úrbótum.
Við leggjum áherslu á skipulag, samráð við verkkaupa og vandaðan frágang frá undirbúningi til loka verks.
Verkefnin okkar
Við sinnum meðal annars þakviðgerðum og þakskiptum, gluggaskiptum, þakköntum, klæðningum og almennri smíðavinnu. Í verkefnasafninu geturðu séð dæmi um verk sem við höfum unnið.
Löggiltur byggingaverktaki
Ræðum verkið þitt
Fáðu ráðgjöf og verðtilboð sem passar þínum þörfum. Það tekur um 2 mínútur að senda fyrirspurn.

